Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/600
Ljáðu mér orð er lokaverkefni okkar til B.Ed. í leikskólafræðum frá Kennarháskóla Íslands 2007. Verkefnið er í tveim hlutum, annarsvegar greinargerð og hinsvegar myndræn orðabók. Þar eru athafnir skýrðar á móðurmáli barnsins og á íslensku, og þarf að útfæra bókina fyrir hvert einstakt barn. Í greinargerðinni fjöllum við um mikilvægi þess að vel sé staðið að aðlögun barna með annað móðurmál en íslensku þegar þau byrja í leikskóla. Okkur virðist að það sé mjög misjafnt hvernig tekið er á þessum málum, því vildum við leitast við að leggja okkar að mörkum til þess að gera byrjunarferlið auðveldara fyrir börn með annað móðurmál en íslensku. Einnig að fá starfsfólki í hendur tæki til að tengja saman ólíka menningarheima.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ljáðu mér orð - Greinagerð.pdf | 166.53 kB | Opinn | Greinagerð | Skoða/Opna | |
Ljáðu mér orð -Orðabók.pdf | 1.63 MB | Opinn | orðabók | Skoða/Opna |