is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/605

Titill: 
  • Tónlist í hávegum höfð : mikilvægi tónlistar og tónlistarnáms
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessu verki er leitast við að finna svör við því hvort tónlist og tónlistarnám sé mikilvægt og
    þá aðallega í tengslum við nám barna. Þar að auki vakti það forvitni okkar hvort einhver
    munur væri á viðhorfum nemenda sem voru í tónlistarnámi og nemenda sem ekki voru í
    tónlistarnámi til náms.
    Í fyrri hluta verksins er ætlunin að varpa ljósi á hvernig tónlist getur haft áhrif á nám
    og er fjallað um ofurnám og Mozart-áhrifin. Auk þess er umfjöllun um ólíkt tónlistarnám
    eins og Suzukiaðferðina og áhrif tónlistanáms á námsgetu. Fjallað er um fjölgreindakenningu
    Gardners en samkvæmt henni má flétta og samþætta tónlist við aðrar námsgreinar. Það er
    mikilvægt að börn, bæði í leik- og grunnskóla, fái tækifæri til að kynnast og iðka tónlist. Í
    síðari hluta verkefnisins er fjallað um könnun sem gerð var á viðhorfi nemenda til náms.
    Gerður var samanburður á nemendum sem stunduðu tónlistarnám og nemendum sem ekki
    voru í tónlistarnámi. Niðurstöðurnar sýna að nemendur sem stunduðu tónlistarnám höfðu
    öðruvísi viðhorf til námsins.
    Tónlist leikur stórt hlutverk í daglegu lífi mannsins og það er margt sem börn fara á
    mis við ef að tónlistarþátturinn í námi þeirra er vanræktur. Það eru margar leiðir færar til að
    auka tónlistarkennslu barna í leik- og grunnskólum. Til eru fjölbreyttar leiðir sem vekja
    áhuga barna og ætti því að vera mögulegt að ná til sem flestra. Helsti vandinn í dag er að það
    vantar menntaða tónmenntakennara auk þess sem almennt kunnáttuleysi bæði leik- og
    grunnskólakennara hefur hamlandi áhrif á það að tónlist sé notuð í daglegu starfi barna.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/605


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Efnisyfirlit.pdf20.31 kBOpinnTónlist í hávegum höfð - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá.pdf44.96 kBOpinnTónlist í hávegum höfð - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Útdráttur.pdf15.3 kBOpinnTónlist í hávegum höfð - útdrátturPDFSkoða/Opna
Tónlist í hávegum höfð.pdf280.09 kBTakmarkaðurTónlist í hávegum höfð - heildPDF