is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6170

Titill: 
  • Ómissandi eða afgangsstærð? Alþjóðaþingmannasambandið og veikleikar, styrkleikar, staða og hlutverk alþjóðlegs þingmannasamstarfs
  • Titill er á ensku Indispensable or Irrelevant? The Inter-Parliamentary Union and the Weaknesses, Strengths, Role and Purpose of International Parliamentary Institutions
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þátttaka íslenskra þingmanna í alþjóðastarfi er svo almenn að ætla má að hver einasti þingmaður sé aðal- eða varamaður í alþjóðanefnd. Þá hefur alþjóðastarf Alþingis undanfarin ár kostað á bilinu 1,3 til 3,9 milljónir króna árlega á hvert þingsæti og ljóst að til er kostað miklu af fjármunum og vinnukröftum þingsins. Þrátt fyrir að vera umfangsmikið og kostnaðarsamt hefur Alþjóðastarf þingmanna verið lítið til umræðu bæði í fræðasamfélaginu og fjölmiðlum.
    Við nánari skoðun kemur þó í ljós að alþjóðlegt samstarf þingmanna getur skipt miklu í samskiptum þjóða og þátttaka í alþjóðlegu starfi kann að verða æ stærri þáttur í starfi þingmannsins. Alþjóðastofnanir þingmanna geta mögulega fært sterkari lýðræðislega vídd í alþjóðasamskipti auk þess að vera frjór vettvangur hugmynda og skoðanaskipta yfir landamæri. Mögulegt er að alþjóðlegar þingmannastofnanir muni leika æ mikilvægara hlutverk og, sérstaklega í tilviki Alþjóðaþingmannasambandsins, verða sterkari rödd á alþjóðasviðinu. Þar eru enda á ferð alþjóðastofnanir sem búa yfir einstökum eiginleikum, og geta –ef rétt er haldið á spilunum– nýtt sér sérstöðu sína á mörkum hefðbundinna milliríkjastonana (IGOs) og aljþóðlegra frjálsra félagasamtaka (NGOs). Þær geta byggt á lýðræðislegu umboði og sérþekkingu þingmanna en þurfa einnig að gefa gaum sýnileika og ímyndarvinnu til að auka áhrif sín.

Samþykkt: 
  • 10.9.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6170


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Althjodlegt thingmannastarf.pdf413.22 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna