is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6192

Titill: 
  • Saga, kenningar og samstarf. Þrjú kristin trúfélög í Keflavík á 20. öld.
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er rakin saga þriggja ólíkra kirkna sem allar hófu starf í Keflavík á síðustu öld. Í fyrsta hluta ritgerðarinnar er farið yfir almenna sögu þessara kirkjudeilda. Síðan er fjallað um kenningar og sérkenni safnaðanna, trúarjátningar þeirra og trúarkenningar. Í þriðja hlutanum verður skoðuð koma þessara kirkna til Íslands og starf þeirra í Keflavík. Í fjórða og síðasta hluta ritgerðarinnar eru til skoðunar kenningar um samstarf kristinna kirkna og samstarf safnaðanna í Keflavík.
    Leitast er við að gera grein fyrir því sem sameinði þessa þrjá söfnuði og þeim kenningum sem einkenndu þá. Rannsóknin byggir á verkum um sögu safnaðanna, tímaritum, fundargerðum, dagbókum, óútgefnum ritgerðum og viðtölum. Sýnt verður fram á að þrátt fyrir kenningamun og mismunandi bakgrunn var samstarf milli þessara safnaða frá miðri öldinni. Þrátt fyrir að þeir störfuðu ekki saman var oftast vinsemd á milli og sýndu þeir hvor öðrum viðurkenningu með sameignlegum guðsþjónustum og bænastundum.

Samþykkt: 
  • 10.9.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6192


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA ritgerð -Tómas Davíð Ibsen Tómasson.pdf458.08 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna