is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/627

Titill: 
  • Tímarnir breytast - en hvað um heimanámið? : notkun vefsins í heimanámi grunnskólanema
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Verkefni þetta er unnið sem lokaverkefni til B.Ed prófs við kennaradeild Háskólans á
    Akureyri. Verkefnið er tvískipt; annars vegar fræðileg ritgerð og hins vegar
    geisladiskur sem inniheldur 10 hugmyndir að útfærslu á heimanámi á vef.
    Ætlunin með ritgerðinni er að skoða hvort heimanám á vef sé raunhæfur
    möguleiki. Þá er mikilvægt að kanna tengda þætti, til dæmis hverjar helstu stefnur
    stjórnvalda varðandi upplýsingatækni eru, hvernig tölfræðin snýr að tölvueign
    landsmanna og hverjir helstu kostir og gallar tölvu og nets eru. Upplýsingalæsi skiptir
    hvern þann sem notast við tölvu miklu máli og því er tilefni til að staldra við og skoða
    það nánar. Farið er yfir þá möguleika sem tölvan býður upp á í kennslu og heimanámi
    auk þess sem markmið Aðalnámskrár eru skoðuð og fjallað er um heimanám og þær
    misjöfnu skoðanir sem eru uppi um það. Einnig er fjallað um heimanám á vef. Þær
    hugmyndir sem er að finna á meðfylgjandi geisladisk eru útskýrðar og stutt samantekt
    er svo á efni kaflanna. Ritgerðinni lýkur svo með lokaorðum.
    Heimanám á vef er raunhæf leið fyrir grunnskóla til að auka fjölbreytni
    heimanáms, auðvelda aðgengi að því og þar með færa það nær nútímanum, tækninni
    og því upplýsingasamfélagi sem nemendur þekkja og búa í.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/627


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerð.pdf1.27 MBTakmarkaðurTímarnir breytast - heildPDF
Efnisyfirlit.pdf36.25 kBOpinnTímarnir breytast - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá.pdf87.81 kBOpinnTímarnir breytast - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Útdráttur.pdf39.45 kBOpinnTímarnir breytast - útdrátturPDFSkoða/Opna