is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/630

Titill: 
  • Leikskólar og áföll
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Áfallaráðum hefur víða verið komið á fót en lítið er vitað um fjölda þeirra og virkni í leikskólum. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna starfsemi áfallaráða í leikskólum í tveimur sveitarfélögum, Reykjavík og Kópavogi. Rannsóknarspurningin var tvíþætt: hvernig er starfsemi áfallaráða háttað í leikskólum í Reykjavík og Kópavogi? Hver er tíðni áfalla og virkni áfallaráða og hvaða leiða hefur leikskólinn leitað til að styðja við börn sem verða fyrir áfalli?
    Í rannsókninni var notuð bæði eigindleg og megindleg aðferðafræði. Tekin voru þrjú viðtöl við fólk sem starfar í leikskóla til að afla gagna fyrir hönnun spurningalista fyrir megindlega hluta rannsóknarinnar sem fólginn var í spurningalista með 15 spurningum. Hann var lagður fyrir 16 leikskóla í Kópavogi og 80 leikskóla í Reykjavík. Svarhlutfallið var 68,8% í Kópavogi en 26,3% í Reykjavík.
    Markverðustu niðurstöður eru að nær allir leikskólar í báðum sveitarfélögunum hafa lent í áfalli (Kóp. 81,8% og Rvk. 90,5%) og enn fleiri telja þörf vera fyrir áfallaráð á sínum leikskóla (Kóp. 90,9% og Rvk. 100%). Hins vegar er ekki algengt að það sé starfandi áfallaráð á leikskólum í Kópavogi eða aðeins í um 30% tilvika. Í Reykjavík segjast 81% leikskóla vera með virkt áfallaráð.
    Okkur virðist að aukin meðvitund sé um gildi áfallaráða og áfallaáætlana í leikskólum og vonum að þessi rannsókn megi verða lóð á þá vogarskál að fleiri leikskólar taki þetta mikilvæga málefni enn fastari tökum.
    Lykilorð: Áfallaáætlun, áfallaráð,

Samþykkt: 
  • 27.8.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/630


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Leikskólar og áföll - heild.pdf520.03 kBOpinnHeildarverkefniPDFSkoða/Opna