is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6413

Titill: 
  • Enskukunnátta nemenda í 2. bekk
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Enska er eitt útbeiddasta tungumál í heimi. Markmið þessara rannsóknar var að athuga enskukunnáttu nemenda í 2. bekk sem ekki hafa fengið neina formlega enskukennslu. Alls tóku 15 nemendur þátt í rannsókninni úr sama bekk og sama skóla. Notast var við sömu rannsóknaraðferð og í rannsókn frá árinu 2006 en þar voru þátttakendur eldri og fleiri. Hlustunarkönnun var lögð fyrir alla nemendur en aðeins sex nemendur tóku þátt í samtalsathugun. Tilgangurinn var að sjá hversu vel nemendum gekk að skilja ensku og nota hana til samskipta. Nemendur þurftu ekki að lesa né skrifa á ensku. Niðurstöðurnar sýndu að nemendur eru mjög færir í enskri tungu þrátt fyrir að hafa ekki fengið neina formlega enskukennslu. Meðaleinkunn nemenda í hlustuninni var 7,0. Í samtalsathuguninni gekk nemendunum misvel að tala ensku. Þrír nemendur töluðu litla ensku á meðan hinir áttu auðvelt með að tala ensku og skildu fyrirmæli og spurningar rannsakandans. Athyglisvert er að sjá að nemendur hafa mikinn orðaforða á ensku þrátt fyrir að hafa ekki fengið neina formlega enskukennslu. Ekkert er því til fyrirstöðu að hefja enskukennslu fyrr en í 4. bekk og virðast nemendur vera mjög áhugasamir og hafa jákvætt viðhorf til enskunnar.

Samþykkt: 
  • 11.10.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6413


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefnið-skemman.pdf1.05 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna