Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6424
Greinargerð þessi er hluti af lokaverkefni til B.Ed.-gráðu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Lokaverkefnið var að útbúa kennsluhugmyndabanka við námsefni í trúarbragðafræði. Meginmarkmið höfunda var að setja saman kennsluleiðbeiningar með fjölbreyttum aðferðum til kennslu, í því skyni að gera trúarbragðakennslu skemmtilega og áhugaverða fyrir unglinga. Í greinargerðinni er fjallað um hvers vegna eigi að kenna um trúarbrögð, hverjar eru bestu leiðirnar í kennslu um trúarbrögð og mikilvægi hennar í nútímasamfélagi, hvað skal varast og hver ávinningur góðrar kennslu um trúarbrögð getur verið. Kenningar í anda fjölgreindakenningarinnar og hugsmíðihyggju eru útskýrðar og tengdar við kennsluaðferðirnar sem höfundar studdust við í kennsluhugmyndabankanum.
Lykilorð: Kennsluhugmyndabanki.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð með kennsluhugmyndabanka fyrir trúarbragðafræði Einar Ómarsson& Þorsteinn Einarsson.pdf | 301.18 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Kennsluhugmyndabanki_Einar_Omarsson&Þorsteinn_Einarsson.pdf | 4.05 MB | Opinn | Kennsluhugmyndabanki | Skoða/Opna |