is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/642

Titill: 
  • Hreyfing leikskólabarna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í verkefni þessu er fjallað um hreyfingu leikskólabarna. Unnið er út frá þeim spurningum
    hvort leikskólabörn fái þá hreyfingu sem þau þurfa og hvernig aðstaðan til hreyfingar sé í
    leikskólum Akureyrarbæjar.
    Fjallað er um hreyfi- og líkamsþroska barna frá fæðingu og fram að sex ára aldri. Farið
    er í þroskaferlið og sagt frá því hversu mikilvægt það er fyrstu árin. Hlutverk leikskóla í að
    skapa góða aðstöðu til hreyfingar er rakið og sagt frá því hversu mikilvægt það er fyrir barn
    að fá þá hreyfingu sem það þarf í leikskólanum. Fjallað er um offitu og sagt frá hvernig hægt
    sé að aðstoða barn sem glímir við það vandamál. Einnig er fjallað um einhverfu, fyrst
    almennt þar er sagt frá því hvernig einhverfa lýsir sér, en þar á eftir er fjallað um börn með
    einhverfu það er hvernig barn sem glímir við þann sjúkdóm hegðar sér og hvernig einhverfa
    er greind. Síðan er fjallað um hreyfigetu einhverfra barna og hvernig þeirra geta í
    hreyfileikjum er. Leitað var eftir svörum frá einum af leikskólum Akureyrarbæjar um getu
    einhverfs barns í hreyfileikjum.
    Í síðari hluta ritgerðarinnar er rannsókn sem gerð var í leikskólum Akureyrabæjar þar
    sem athugað var hvernig þeir uppfylla þá þörf sem börn hafa til að hreyfa sig. Þar kemur
    meðal annars fram að leikskólarnir sem tóku þátt í könnunni eru allir að vinna með hreyfingu
    en eru misvel búnir til að veita börnunum þá aðstöðu sem þau þurfa til hreyfingar.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/642


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Fylgiskjöl.pdf167.61 kBLokaðurHreyfing leik - fylgiskjölPDF
Hreyfing leikskólabarna - lokaritgerð, Helena Sif Jónsdóttir.pdf127.51 kBLokaðurhreyfing leik - heildPDF
Yfirlýsingar og útdráttur.pdf5.46 kBOpinnhreyfing leik - útdrátturPDFSkoða/Opna