Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6442
Spil og leikir sem kennsluaðferð í stærðfræði á yngsta stigi grunnskólans er yfirskrift verkefnis okkar. Það samanstendur af fræðilegri ritgerð og fylgiskjölum um spil og leiki sem hægt er að nota við kennslu.
Í ritgerðinni skoðum við hvernig börn læra stærðfræði, hvernig talnaskilningur þeirra byggist upp og helstu vörður á leið þeirra til skilnings. Rýmisgreind og rökhugsun eru börnunum mikilvæg þekking til almenns stærðfræðiskilnings. Fjallað verður um helstu kenningar um leikinn og hvernig barnið þroskast í leiknum. Tveir grunnskólakennarar veittu okkur viðtöl og deildu með okkur sínum hugmyndum um spil og leiki í stærðfræðikennslu. Við skoðuðum fræðilegt gildi spila og leikja við kennslu og bárum saman niðurstöður. Að lokum settum við saman safn leikja og spila sem við komum til með að nýta okkur í kennslu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaverkefni 28.pdf | 1.24 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |