Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6450
Helsta viðfangsefni þessarar greinargerðar er leikur og leikræn tjáning barna í skólastarfi. Meginmarkmið hennar er að skoða og rýna í kenningar fræðimanna um tiltekna þætti svo sem skilgreiningar, gildi, viðhorf, markmið leikja og leikrænnar tjáningar í skólastarfi. Kynntar eru til sögunnar kenningar og sjónarmið sem bæði tengjast leikjum og leikrænni tjáningu. Kenningar og sjónarmið fræðimanna voru skoðuð og túlkuð með það að leiðarljósi að búa til námsefni. Auk greinargerðar setjum við fram kennsluefnið „Hér og nú“ sem við höfum hannað og útbúið með þarfir nemenda á yngsta stigi grunnskólans í huga. Kennsluefnið inniheldur fjölda leikja og leikferla, sem flokkaðir eru á aðgengilegan hátt. Það er tilbúið til notkunar fyrir kennara og gefur möguleika á að nota með bekkjarheildum og smærri hópum eða sem þema í samvinnu skólaárganga. Kennsluefnið skiptist í sex flokka. Meginflokkarnir sex eru aðgreindir með litum með það að leiðarljósi að aðgreina þá hvern frá öðrum ásamt því að gera þemavinnuna aðgengilega í framkvæmd. Flokkarnir eru: orðaleikir, sönghreyfileikir, hreyfileikir, hugþroskaleikir, leikræn tjáning og gátur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hér og nú fræðigrein.pdf..pdf | 163.05 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
FORSÍÐA -fræðigrein B.ed..doc | 63 kB | Opinn | Forsíða | Microsoft Word | Skoða/Opna |
Loka (2).pdf | 4.61 MB | Opinn | Kennsluefni | Skoða/Opna |