Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6456
Sem lokaverkefni ákvað höfundur að búa til kennarahandbók með leiðum til að kenna íslensku á yngsta stigi með aðferðum leikrænnar tjáningar. Með handbókinni fylgir fræðileg greinargerð sem styður við kennarahandbókina.
Í handbókinni Íslenska er leikur einn eru æfingar sem höfundur hefur safnað, útfært og tengt markmiðum aðalnámskrár grunnskóla um íslenskukennslu. Æfingarnar eru útfærðar á mismunandi hátt eftir aldri nemenda og tilgreindir eru þættir sem þær vinna með samhliða íslenskunámi. Jafnframt eru þær aðferðir leikrænnar tjáningar sem notaðar eru í bókinni útskýrðar. Einnig er kafli um námsmat sem hægt er að nýta þegar meta á árangur nemenda í íslenskunámi.
Í greinargerðinni eru kynntar hugmyndir nokkurra erlendra brautryðjenda í notkun leikrænnar tjáningar og drepið á rannsóknir á leiklist í skólastarfi Einnig er fjallað um þau markmið aðalnámskrár í íslensku sem unnið er eftir í handbókinni og gerð grein fyrir hlutverki leikrænnar tjáningar samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla. Að lokum eru færð rök fyrir ávinningi nemenda og kennara af notkun leiklistar í skólastarfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerd_islenska_er_leikur_einn_iam.pdf | 268.69 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Handbok_islenska_er_leikur_einn_iam.pdf | 348.61 kB | Opinn | Kennarahandbók | Skoða/Opna |