Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6472
Í þessari ritgerð er fjallað um listgreinakennslu í grunnskólum frá nokkrum sjónarhornum. Fræðileg umfjöllun er um þrjá þætti. Í fyrsta lagi um mikilvægi listgreinakennslu fyrir skólastarf almennt og nemendur sérstaklega. Í annan stað um það hverjir eigi að kenna listgreinar en um það eru skiptar skoðanir. Í þriðja og síðasta lagi er fjallað um úttekt sem gerð var á vegum menntamálaráðuneytis um stöðu listagreina á Íslandi. Einnig er sagt frá niðurstöðum könnunar sem gerð var meðal nokkurra skólastjóra í grunnskólum en skólarnir voru valdir af handahófi úr öllum kjördæmum án tillits til nemendafjölda. Spurt var um menntun myndmenntakennara, fjölda þeirra, aldur og kyn svo og viðhorf skólastjóra til list- og verkgreinakennslu í grunnskólum. Að lokum var spurt um áhrif efnahagskreppunnar á skólastarf almennt en einkum á kennslu í list- og verkgreinum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Engin getur allt, en allir . . ..pdf | 882.55 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |