Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6513
Í þessu verkefni höfum við sett fram þrettán kennsluhugmyndir fyrir elstu börn leikskólans. Megin viðfangsefni eru náttúrufræði, stærðfræði og eðlisfræði en við teljum að þörf sé á að samþætta þessa námsgreinar meira inn í daglegt starf leikskólans. Við leggjum fram verkefnin með þeirri hugmyndafræði að það séu börnin sjálf sem leita svara við þeim spurningum sem gætu komið upp. Hlutverk kennarans í verkefnunum er að styðja við leitarnám barnsins og skapa gott námsumhverfi. Í verkefnunum er að finna ítarlega lýsingu á hvernig þau eru uppbyggð, hvaða efnivið þarf, markmið og hugmyndir að bókum og vefsíðum sem hægt er að nýta sem ítarefni eða kveikjur í verkefnunum. Mat kennarans er einnig mikilvægur hluti af verkefninu og leggjum við fram nokkra punkta fyrir hann til að hugleiða og meta verkefnið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinagerð | 132.56 kB | Opinn | Inngangur, lokaorð, heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Fræðileg umfjöllun | 148.24 kB | Lokaður | Fræðileg umfjöllun | ||
Námsefni í raunvísindum | 22.5 MB | Lokaður | Námsefni í raunvísindum |