is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6514

Titill: 
  • Vettvangsferðir : hvað leynist í túnfætinum?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. í leikskólakennarafræðum á Menntavísindasviði við Háskóla Íslands.Titill ritgerðarinnar „Hvað leynist í túnfætinum?“ vísar til þess að oft þarf ekki að leita langt yfir skammt til að vinna skemmtileg verkefni með börnum. Nánasta umhverfi dugar fyllilega til þess. Í ritgerðinni er að finna fræðilega umfjöllun um grenndarfræði, vettvangsferðir, hlutverk kennara og hugmyndafræði og kennismiði. Í þeim hluta er John Dewey, Howard Gardner og könnunaraðferðinni gerð sérstök skil. Í síðari hluta ritgerðarinnar er útfærsla á þremur verkefnum sem hægt er að vinna með elstu börnum á leikskóla: Ég er að fara í grunnskóla er verkefni sem ætlað er að auðvelda börnum að fara úr leikskóla yfir í grunnskóla, Náttúran í grenndinni en það verkefni fær börn til að upplifa og skynja náttúruna í grenndinni og að síðustu er þriðja verkefnið heitir Komdu að leika og er samnefnd sýning á Árbæjarsafni notuð sem kveikja á frekari verkefnum tengd útivist og gömlum leikjum.

Samþykkt: 
  • 14.10.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6514


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Guðrún Viktoría lokaritgerð.pdf460.91 kBLokaðurPDF