is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6521

Titill: 
  • Ranghugmyndir um náttúrulegt val : yfirlit um rannsóknir og forkönnun á þekkingu kennara
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Rannsóknir hafa verið gerðar er beinast að skilningi nemenda á öllum skólastigum og kennurum á grundvallarhugtökum þróunarfræðinnar. Í ljós hefur komið að skilningur flestra er bágborinn og rangur. Einstaklingar búa yfir hugmyndum um þróunarfræðina sem eiga sér ekki vísindalega stoð og nefnast þessar hugmyndir ranghugmyndir. Þessar hugmyndir eru af ýmsum toga en fela m.a. í sér hugmyndir um að lífveran sjálf stjórni líffræðilegri aðlögun sinni eða að dýrin sækist eftir vænlegra umhverfi. Þessar hugmyndir geta verið sprottnar upp af margræðni hugtaka og misvísandi hugtakanotkunar meðal kennara og fjölmiðla. Í þessari ritgerð er gerð grein fyrir helstu niðurstöðum rannsókna á þessu sviði og auk þess er greint frá niðurstöðum forkönnunar á skilningi 10 náttúrufræðikennara í grunnskólum á Suðurlandi á náttúrulegu vali og aðlögun. Ranghugmyndir voru greindar og niðurstöður könnunarinnar bornar saman við aðrar rannsóknir sem byggðu á sömu spurningum. Í ljós kom að 8 af 10 kennurum svöruðu að minnsta kosti einni spurningu í formi ranghugmyndar en úr viðtalshluta forkönnunar voru að meðaltali 54% kennara sem svöruðu spurningunum vísindalega rétt, sem er hærra hlutfall en má finna í samanburðarrannsóknum.

Samþykkt: 
  • 14.10.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6521


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ranghugmyndir um natturlegt val.pdf871.72 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna