Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6529
Í ritgerð þessari er fjallað um fjölskylduáætlun og eins-barns stefnu kínverskra stjórnvalda og sérstaklega er farið í hvort um sé að ræða brot á réttindum kvenna með henni. Til að mynda er athugað hvort að um árás geti verið að ræða á einkalífi kvenna með framkvæmd yfirvalda á henni. Á undanförnum árum hafa Kínverjar sóst meira eftir viðskiptum og samvinnu á alþjóðavettvangi sem hefur orðið til þess að vekja athygli alþjóðasamfélagsins á fjölskylduáætlun Kínverja. Þeir hafa sætt töluverðri gagnrýni fyrir og verða nokkrar hliðar á þeirri gagnrýni teknar fyrir í ritgerðinni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Fjölskylduáætlun og eins-barns stefna Kína.pdf | 884.01 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |