Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6534
Lokaritgerð þessi er unnin til B.Ed.-gráðu í leikskólakennarafræðum. Markmiðið var að skoða einelti og hvernig má nota barnabækur og kennsluaðferðir sem forvörn í leikskólum. Í eineltisumræðunni er oft fjallað um einelti eins og það eigi sér einungis stað í grunnskólum. Eftir ítarlega leit að rannsóknum og/eða athugunum á einelti innan leikskóla fundust mjög fáar heimildir um efnið, sem bendir til að einelti hafi lítið verið skoðað hjá leikskólabörnum. Úrræði gegn einelti voru einnig könnuð og kom í ljós að flest þeirra voru miðuð við grunnskóla og jafnframt mjög sjaldan við leikskóla. Þess vegna var ákveðið að leggja fram tillögur að öðrum úrræðum til þess að vinna gegn einelti á leikskólum. Ákveðið var að nota tvær barnabækur og ýmsar kennsluaðferðir sem forvörn gegn einelti í leikskóla. Kennsluaðferðirnar byggja á sköpun og hugsunum barnanna sjálfra.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
einelti í leikskólum forvarnir með hjálp barnabóka tilbúið.pdf | 379.34 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |