Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6555
Verkefni þetta fjallar um gildi samþættingar, verk- og bóklegra námsgreina, í skólastarfi. Með slíkri samþættingu geta nemendur nálgast verkefni frá fleiri en einu sjónarhorni, tenging námsefnis við daglegt líf verður skýrari og nám verður merkingarbært í þeirra augum. Í fyrri hluta verkefnisins er samþætting námsgreina reifuð og tengd við aðalnámskrá. Fjallað er um hugmyndir fræðimanna um nám barna og sýnt er fram á samhljóm í grunnsjónarmiðum þeirra og samþættingarkennslu.
Mikilvægi verknáms er gerð góð skil og hversu mikilvægt það er að virkja sköpunarhæfni og sköpunargleði barna. Fjallað er um nám á yngsta stigi grunnskólans og kynntar aðferðir sem miða að samþættingu námsgreina s.s. þemanám og söguaðferð. Settar eru fram kennsluhugmyndir sem ætlað er að sýna fram á hve einfalt er að samþætta verk- og bóklegar greinar á yngsta stigi grunnskóla. Kennsluhugmyndirnar byggja á þemanámi, söguaðferð og leikjum. Lögð er áhersla á að sýna hvernig nýta má verklegar greinar til að brjóta upp hefðbundna kennslu og vekja innri áhugahvöt nemenda á námi, hvort sem það er bók- eða verklegt. Ekki má gleyma að nám er fyrir lífið og þarf að hafa framtíð nemenda, að markmiði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
samthaetting_verk_og_boklegt_a_yngsta_stigi_efnisyfirlit.pdf | 83.9 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
samthaetting_verk_og_boklegt_a_yngsta_stigi_heimild.pdf | 89.43 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna | |
samthaetting_verk_og_boklegt_a_yngsta_stigi_heildarskjal.pdf | 741.87 kB | Lokaður | Heildartexti | ||
samthaetting_verk_og_boklegt_a_yngsta_stigi_meginmal.pdf | 352.95 kB | Lokaður | Meginmál | ||
samthaetting_verk_og_boklegt_a_yngsta_stigi_kennsluverkefni.pdf | 459.78 kB | Opinn | Kennskuverkefni | Skoða/Opna |