is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/655

Titill: 
  • Hvað ungur nemur, gamall temur : grenndarkennsla í leikskólanum Brekkubæ, Vopnafirði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í verkefni þessu er fjallað um hvernig megi nota grenndarkennslu í leikskólanum
    Brekkubæ til að styrkja sjálfsvitund barnanna. Gerð er grein fyrir hvað í grenndarfræði
    felst og þeirri hugmyndafræði að hún sé nýtt til að efla og styrkja sjálfsvitund nemenda.
    Fjallað er um þrjár hornstoðir sjálfsvitundar, söguvitund, grenndarvitund og
    umhverfisvitund og samspili þeirra. Þá er einnig skoðað hvernig hugtök
    grenndarfræðinnar og grenndarkennsla rúmast innan markmiða Aðalnámskrár leikskóla.
    Gerð er grein fyrir hugmyndum nokkurra fræðimanna um nám og kennslu, þeirra
    Howard Gardner, John Dewey, Lev S. Vygotsky og Loris Malaguzzi og hvernig
    kenningar þeirra falla að hugmyndum grenndarfræðinnar. Allir leggja þeir áherslu á
    mikilvægi umhverfisins í námi barna og að börn komist í snertingu við náttúruna og
    nánasta umhverfi sitt. Það er á ábyrgð kennarans að útbúa umhverfið og námsefnið sem
    hæfir börnum og skemmtilegt að flétta hugmyndir þessara kennimanna saman þar sem
    það fellur vel að leikskólastarfi.
    Í verkefninu er greint frá leikskólanum Brekkubæ á Vopnafirði og aðstæðum hans
    lýst að innan sem utan með tilliti til grenndarkennslu og hvernig fella má fjölbreytta
    möguleika að einstökum námssviðum Aðalnámskrár leikskóla. Að lokum eru kynntar
    hugmyndir að einstökum verkefnum fyrir leikskólabörn í grenndarkennslu sem tengjast
    heimabyggðinni og varðar sögu, menningu og umhverfi. Verkefnin eru ólík og snerta
    námssviðin sex er tilgreind eru í Aðalnámskrá leikskóla. Verkefnin eru mislöng og einfalt
    að heimfæra þau yfir á aðrar þjóðsögur, örnefni eða heimabyggð og ættu verkefnin því að
    geta komið fleirum leikskólakennurum að notum.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/655


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
efnisyfirlit.pdf5.37 kBOpinnUngur nemur - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
heimildarskrá.pdf14.09 kBOpinnUngur nemur - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Hvað ungur nemur gamall temur.pdf723.22 kBTakmarkaðurUngur nemur - heildPDF
útdráttur.pdf15.96 kBOpinnUngur nemur - útdrátturPDFSkoða/Opna