is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/656

Titill: 
  • Hvað ungur nemur gamall temur : starf með yngstu börnum leikskólans og hlutverk leikskólakennarans
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Á undanförnum árum hefur þjóðfélagið breyst mikið á Íslandi og hefur þróunin leitt til
    þess að konur fara fyrr út á vinnumarkaðinn eftir fæðingarorlof en áður. Sú krafa hefur
    verið uppi í samfélaginu að börn fari yngri í leikskóla. Vegna langs vinnutíma foreldra
    hefur þetta leitt til að mörg börn eru megnið af vökutíma sínum í leikskóla. Í
    vettvangsnámi okkar og starfi höfum við tekið eftir því, að starf með yngstu börnum í
    leikskólanum hefur oft verið vanmetið. Við vildum nota það tækifæri sem lokaritgerð er,
    til að dýpka þekkingu okkar á aldurshópnum.
    Það er áhugavert að skoða hvað örvun og góð umönnun hefur mikil áhrif á þroska
    ungra barna og hvað hún skiptir miklu máli fyrir barnið seinna meir á lífsleiðinni.
    Mikilvægt er að foreldrar og aðrir uppalendur geri sér grein fyrir hversu áhrifaríkir þessir
    grunnþættir hafa á uppeldi ungra barna.
    Eins og fram kemur dvelja börn stóran hluta dagsins í leikskólum og má leiða af
    því líkum, að hlutverk leikskólakennarans sé mikið þegar kemur að uppeldi og menntun
    barna. Þar af leiðandi er nauðsynlegt að í leikskólunum starfi vel menntað fólk sem geri
    sér grein fyrir hvernig þroski ungra barna á sér stað. Að það átti sig á að það er fyrirmynd
    barnanna og geti haft mikil áhrif á þroska barnsins, þannig að börnin verði góðir og nýtir
    þegnar í þjóðfélaginu.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/656


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Efnisyfirlithvadungurnemurgamalltemur.pdf21.46 kBOpinnHvað ungur nemur - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildaskrahvadungurnemur.pdf30.58 kBOpinnHvað ungur nemur - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Hvadungurnemurgamalltemur.pdf272.39 kBTakmarkaðurHvað ungur nemur - heildPDF
UtdratturHvadungurnemur.pdf12.71 kBOpinnHvað ungur nemur - útdrátturPDFSkoða/Opna