Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6584
Sem lokaverkefni til BEd prófs frá Háskóla Íslands langaði okkur til að skoða tengsl íþróttaiðkunar unglinga við árangur þeirra í skóla. Einnig lék okkur forvitni á að vita hvort skipulögð íþróttavirkni hefði eitthvað að segja varðandi sjálfsmynd unglinga og andlega líðan þeirra.
Ákveðið var að nota megindlega rannsóknaraðferð þar sem spurningalisti var lagður fyrir 227 nemendur í 7. bekk og 10. bekk þriggja skóla á höfuðborgarsvæðinu og einn utan höfuðborgarsvæðis. Val á skólunum var skv. hentugleikaúrtaki.
Helstu niðurstöður voru þær að af 227 nemendum stunduðu 190 íþróttir utan skólatíma. Nemendur í 10. bekk stunduðu íþróttir oftar í viku en sjöundu bekkingar. Þegar hópurinn var spurður um ástæður íþróttaiðunar sinnar þá sögðu nemendur í 10. bekk það vera til að bæta líkamlegt atgervi sitt en nemendur í 7. bekk litu á þetta meira sem skemmtun og til heilsueflingar.
Niðurstöðurnar gefa ákveðna vísbendingu um að þeir sem stunda íþróttir eru sáttari við líkamsástand sitt og þeim virðist líða almennt betur í skólanum.
Að lokum kom í ljós að þeir sem stunda reglulega skipulagt íþróttastarf virðast ganga betur námslega og eru vissari um framtíðaráætlanir sínar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerd tilbúin PDF.pdf | 780.48 kB | Lokaður | Ávinningur íþrótta á námsárangur og andlegan vellíðan | ||
Forsíða tilbúin PDF.pdf | 34 kB | Lokaður | Forsíða |