is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/660

Titill: 
  • Ljóð í leikskólum : vinna með ljóð sem þema
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. gráðu í kennaradeild við Háskólann á Akureyri.
    Fjallað er um vinnu með ljóð í leikskólum og leitast við að svara spurningunum: Er hægt
    að örva alla þroskaþætti barna sem kveðið er á um í Aðalnámskrá leikskóla í vinnu með
    ljóð? Og skiptir máli hvers konar ljóð það eru? Svarið er játandi. Að mati höfunda
    þessarar ritgerðar eru ljóð góður kostur til að vinna með í leikskólum og hægt að flétta
    vinnu með þau þannig að komið er inn á öll námsvið leikskóla og þar með örva alla
    þroskaþætti barna. Hægt er að notast við hvaða ljóð sem er svo framalega að börn geti
    tengt efni þess við reynslu sína að einhverju leyti.
    Í ritgerðinni er farið í stuttu máli yfir sögu barnabóka og ljóða og hvernig
    barnamenningu var háttað á árum áður. Farið er inn á móðurmálskennslu í leikskólum og
    sýnt fram á að vinna með ljóð er kjörin leið til að efla málþroska ungra barna. Fjallað er
    um hlutverk kennara og undirbúning barna fyrir komandi skólagöngu. Þá er fjallað um
    kenningar nokkra fræðimanna og hvernig þær samræmast markmiðum Aðalnámskrá
    leikskóla.
    Í fylgiskjali er Handbók fyrir kennara í leikskólum sem höfundar þessarar
    ritgerðar hafa útbúið. Þar er komið á framfæri hugmyndum höfunda að verkefnavinnu
    með þema út frá þremur ljóðum. Með hverju ljóði eru sett eru fram sex verkefni og er
    vinnan skipulögð út frá öllum námsviðum leikskóla en þau eru: hreyfing, málrækt,
    tónlist, menning og samfélag, náttúra og umhverfi og myndsköpun.

Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/660


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Efnisyfirlit.pdf18.99 kBOpinnLjóð - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Handbok_kennara.pdf682.95 kBOpinnLjóð - handbókPDFSkoða/Opna
Heimildaskra.pdf28.34 kBOpinnLjóð - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Heimildaskra_Handbok.pdf16.09 kBOpinnLjóð - heimildaskráhandbPDFSkoða/Opna
Ljod_i_leikskolum.pdf822.88 kBOpinnLjóð - heildPDFSkoða/Opna
Utdrattur.pdf19.01 kBOpinnLjóð - útdrátturPDFSkoða/Opna