Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6627
Ritgerð þessi er lokaverkefni í þroskaþjálfafræðum frá Háskóla Íslands. Markmið ritgerðarinnar var að kynna það sérkennsluúrræði sem boðið er upp á í Fjölgreinadeildinni, hvernig uppbyggingin er í kringum hana og hvernig starf þroskaþjálfans nýtist í umhverfi eins og þessu. Fjölgreinadeildin er sérkennsluúrræði innan Lækjarskóla og býður upp á nám fyrir nemendur í 9. og 10. bekk sem ná ekki að fóta sig í almennum grunnskóla vegna sértækra námsörðugleika, félags- og tilfinningalegra erfiðleika.
Ritgerðin byggir á athugun minni á Fjölgreinadeildinni Lækjarskóla í Hafnarfirði og minni persónulegu reynslu.
Í verkefninu kemur fram áhrif félags- og tilfinningalegra erfiðleika barna og þeirra áhrif á skólastarf og hvernig tekur skólinn á því. Einnig verður fjallað um hvað veldur námsörðugleikum hjá börnum í grunnskóla og hvaða þættir það eru sem styðja við barnið. Farið verður inná uppbyggingu Fjölgreinadeildarinnar í dag og skoðað skoðað gildi þess að þroskaþjálfar starfi innan svona deildar.
Efnisorð: tilfinninga- og félagslegir erfiðleikar
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni búið að lesa yfir.doc | 133.5 kB | Lokaður | Ritgerð þar sem Fjölgreinadeildin í Lækjarskóla er skoðuð | ||
Formáli.docx | 10.48 kB | Lokaður | |||
Forsíða.doc | 62.5 kB | Lokaður |