is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/663

Titill: 
  • Hreyfing leikskólabarna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Mannslíkaminn er hannaður til að vera á hreyfingu og bregst illa við mikilli kyrrsetu. Mikil
    umræða hefur átt sér stað í þjóðfélaginu að undanförnu um hreyfingarleysi og holdafar. Komið
    hefur fram í mörgum rannsóknum víða um heim að helsta dánarorsök manna er hreyfingarleysi
    og offita. Í þessari ritgerð er fjallað um mikilvægi og áhrif hreyfingar á alla þroskaþætti barna og
    áhrif hreyfingarleysis á heilsufar. Rætt um hreyfihömlun barna, skoðaðar skilgreiningar á
    hreyfihömlun ásamt því að benda á mikilvægi þess að leikskólar bregðist við breyttum áherslum í
    þjóðfélaginu. Íslensk börn yngri en 6 ára dvelja meirihluta dagsins í leikskóla sem hlýtur því að
    vera mikilvægur vettvangur til að hindra að börn lendi í hreyfivanda. Leikskólinn á að taka tillit
    til þarfa hvers einstaks barns svo það fái notið sín á eigin forsendum í barnahópnum. Barn sem
    glímir við fötlun, hömlun eða veikindi hefur þörf fyrir að vinna sigra ekki síður en heilbrigt barn.
    Hreyfing barna hefur áhrif á marga þroskaþætti þeirra, börn með góða hreyfifærni eru líklegri til
    að verða sjálfsöruggari og sterkari persónuleikar. Leikurinn gegnir mikilvægu hlutverki í námi og
    þroska barna. Í gegnum tíðina hefur fjöldi fræðimanna rannsakað og fjallað um leik barna og
    hvaða hlutverki hann gegnir. Fræðimennirnir komust að ýmsum og oft og tíðum ólíkum
    niðurstöðum. Sumar þessara kenninga fjalla um þróun leiks og uppruna hans en aðrar beinast að
    því hvers vegna börn leika sér. Lykilatriði í hreyfiuppeldi barna er að börnin læri í gegnum leik
    og einkennast því góðar hreyfistundir af skipulögðum og frjálsum leik í bland. Hugmyndir að
    hreyfistundum sem fram koma í ritgerðinni eru flokkaðar niður, miðaðar við 2 ára og yngri, 3-4
    ára og 5-6 ára. Höfundar gerðu könnun á hreyfistundum og aðstöðu leikskóla til hreyfiiðkunar
    sem send var út af handahófi til eitt hundrað leikskóla um land allt.

Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/663


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
bréf með könnun.pdf38.45 kBOpinnHreyfing leik - bréfPDFSkoða/Opna
könnun.pdf34.68 kBOpinnHreyfing leik - könnunPDFSkoða/Opna
forsíða og titilsíða pdf.pdf50.48 kBOpinnHreyfing leik - forsíðaPDFSkoða/Opna
Hreyfing leikskólabarna.pdf411.83 kBOpinnHreyfing leik - heildPDFSkoða/Opna
Efnisyfirlit.pdf35.42 kBOpinnHreyfing leik - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá.pdf84.63 kBOpinnHreyfing leik - heimildaskráPDFSkoða/Opna
útdráttur.pdf49.71 kBOpinnHreyfing leik - útdrátturPDFSkoða/Opna