is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6662

Titill: 
  • Mikilvægi hreyfingar og næringar á sjálfsmynd fatlaðra ungmenna
  • Bæklingur á auðskildu máli tengt hreyfingu, næringu og vellíðan
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þegar við fórum að skoða ýmsa möguleika um viðfangsefni til að skrifa BA-ritgerð okkar var ýmislegt sem kom til greina. Eftir að hafa ígrundað vel ákvörðun okkar á vali á efni sem ber heitið ,,Mikilvægi hreyfingar og næringar á sjálfsmynd fatlaðra ungmenna“ kom í ljós að við höfðum báðar brennandi áhuga á líðan fatlaðra einstaklinga. Þegar við hreyfum okkur reglulega og borðum hollan og fjölbreyttan mat þá finnum við að okkur líður betur bæði líkamlega og andlega. Við hófumst handa og gerðum heimildarverkefni þar sem við fjölluðum um efnið út frá fræðilegum grunni. Afrakstur þessa verkefnis varð svo bæklingur sem er ætlaður fötluðum unglingum með þroskahömlun um mikilvægi hreyfingar og næringar á sjálfsmynd. Hann er myndrænn og settur fram á auðskildu máli svo fatlaðir geti skoðað hann á sínum eigin forsendum.
    Við ákváðum að gera fræðslubækling tengdan heilsu þar sem við teljum að fatlaðir fái ekki næga fræðslu sem snertir heilbrigði og átti sig því ekki oft á tíðum á hverjar geta verið afleiðingar óholls lífsstíls.

Samþykkt: 
  • 21.10.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6662


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
loka 27 april.pdf518.02 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
bæklingur, rétti.pdf3.89 MBOpinnBæklingurPDFSkoða/Opna