is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6674

Titill: 
  • Sálfélagslegar meðferðir fyrir einstaklinga með tvíþátta geðsjúkdóm
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tvíþátta geðsjúkdómur þar sem einstaklingurinn hefur bæði geðsjúkdóm og fíknisjúkdóm er algengur. Margir fylgikvillar og félagsleg vandamál fylgja því að vera með tvíþáttagreiningu sem hefur mikil áhrif á líf einstaklingsins og fjölskyldu hans. Eru þessir þættir einnig mjög kostnaðarsamir fyrir samfélagið. Því er mjög mikilvægt að þessi sjúklingahópur fái meðferð við hæfi.
    Í þessari samantekt er fjallað um sálfélagslegar meðferðir fyrir einstaklinga með tvíþátta-greiningu. Eru heimildirnar fengnar úr gagnagrunnum Scopus, Cinahl, PubMed og Medline. Fjallað er um samþætta meðferð, hvatningarviðtal, hugræna atferlismeðferð og 12-spora prógramm og árangur rannsókna metinn. Leitast er eftir því að finna hvaða meðferð ber árangur. Samantektin sýnir að sálfélagslegar meðferðir eru árangursríkar fyrir einstaklinga með tvíþátta-greiningu og þá helst í formi samþættrar meðferðar. Þá er 12-spora prógramm sérstaklega ætlað einstaklingum með tvíþáttagreiningu árangursrík leið til að ná fram og viðhalda langtíma árangri.
    Lykilorð: tvíþáttagreining, sálfélagslegar meðferðir, samþætt meðferð, hópmeðferð, hvatn-ingarviðtal, hugræn atferlismeðferð, 12-spora prógramm.

Samþykkt: 
  • 26.10.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6674


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
snidmat_lokaverkefni.pdf382.38 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna