is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/671

Titill: 
  • Hvað er bernskulæsi?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Bernskulæsi er nýlegt hugtak um það hvernig lestur þróast hjá börnum og mikilvægi þess að styðja vel við þá þætti sem bernskulæsi stendur fyrir. Í þessari heimildaritgerð er leitast við að svara rannsóknarspurningunum hvað er bernskulæsi og hvað örvar bernskulæsi. Verkefnið var unnið með fræðilegum heimildum en ekki var gerð rannsókn. Bernskulæsi þróast frá fæðingu og þar til eiginlegt lestrarnám hefst og því byrjar umfjöllunin á því hvernig máltaka fer fram. Kynntar eru ýmsar kenningar um máltöku og gerð grein fyrir þróun máls. Fræðileg umfjöllun er um hugtakið bernskulæsi og þá þætti sem það stendur fyrir. Bernskulæsi saman stendur af ýmsum þáttum sem styðja hvern annan.
    Gerð var áætlun um örvun bernskulæsis hjá leikskólabörnum þar sem leikurinn var hafður að leiðarljósi. Einnig er fjallað lítillega um hlutverk foreldra og annarra uppalenda til að örva málþroska barna sinna. Fjallað er um greiningartæki sem notuð eru í leikskólum til þess að kanna hljóðkerfisvitund barna, einnig með hvað hætti lestrarfærni er könnuð hjá yngstu börnum grunnskólans. Ólíkum kenningum um lestrarkennsluaðferðir sem notaðar eru í grunnskólum eru gerð skil. Í lokin drógum við saman niðurstöður heimildanna og ályktuðum út frá þeim að örvun bernskulæsis er mikilvæg því lengi býr að fyrstu gerð.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/671


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Bernskulæsi.pdf411.46 kBLokaðurBernskulæsi - heildPDF
Efnisyfirlit1.pdf11.02 kBOpinnBernskulæsi - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá.pdf34.95 kBOpinnBernskulæsi - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Útdráttur.pdf14 kBOpinnBernskulæsi - útdrátturPDFSkoða/Opna