is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/673

Titill: 
  • Leikskólinn á tímamótum : hvernig á að bregðast við auknum fjölda nýbúa?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í skjóli tilskipunar EES um frelsi launþega til flutninga og atvinnufrelsis á milli landa EB
    og EFTA ríkjanna samkvæmt 28. grein laga þar um er fólki heimilt að flytja til þeirra
    landa sem í þessum samtökum eru og vinna þar. Ísland er þar ekki undanskilið og má sjá
    erlent vinnuafl mjög víða, ekki hvað síst í smærri byggðakjörnum á landsbyggðinni. Í
    kjölfar þessa eru margvíslegar breytingar á mynstri þessara samfélaga og er leikskólinn á
    tímamótum vegna fjölda erlendra barna sem sækja þar nám.
    Með lokaverkefni mínu til B.Ed. gráðu í leikskólakennaranámi ætla ég að byggja upp
    samskiptakerfi sem byggir á foreldrahandbók og málörvunaráætlun til hægðarauka fyrir
    nýbúa þessa lands. Foreldrahandbókin verður gefin út á þremur tungumálum þ.e.
    íslensku, ensku og pólsku og er hún sérstaklega sniðin fyrir leikskólana í Vesturbyggð þar
    sem ég vinn. Ég ætla að útfæra myndrænt dagsskipulag á íslensku, ensku og pólsku, en
    sendi þau eingöngu á íslensku í verkefninu mínu. Myndirnar eiga að sýna það sem fer
    fram á leikskólanum yfir daginn, en hann er opin frá kl. 7.45 til 17.15 alla virka daga.
    Ég tel gott fyrir alla sem eiga börn á leikskóla að fá foreldrahandbók sem útskýrir það
    sem fram fer á leikskólanum, og hvers má vænta af leikskólanum hvert ár. Til að hjálpa
    þeim börnum sem byrja í leikskóla þarf að vera góð málörvunaráætlun til staðar sem er
    aðgengileg fyrir allt starfsfólk á leikskólanum og foreldrum barnanna sýnileg. Tel ég
    þetta vera grundvallaratriði til að gott leikskólastarf geti þrifist þar sem börn af ólíku
    þjóðerni og menningu mætast og vinna saman. Þetta er búið að vera áhugamál hjá mér
    síðan ég var í vettvangsnámi á Akranesi. Það er von mín að þetta verkefni nýtist leik- og
    grunnskólum við þróun á ennþá betra samskiptakerfi í framtíðinni.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/673


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Efnisyfirlit.pdf42.34 kBOpinnLeikskólinn - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildir.pdf88.85 kBOpinnLeikskólinn - heimildirPDFSkoða/Opna
LOKARITGERÐ SKIL.pdf6.4 MBTakmarkaðurLeikskólinn - heildPDF
Útdráttur.pdf55.36 kBOpinnLeikskólinn - útdrátturPDFSkoða/Opna