is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/690

Titill: 
  • Skóli fyrir alla : sýn skólastjóra í Reykjavík á skóla fyrir alla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Meginmarkmið þessa verkefnis er að skoða rétt fatlaðra barna til að ganga í almenna grunnskóla og hvort skólinn sé að mæta þörfum þeirra með tilliti til þroska og getu. Athugun þessi tók til þeirrar stefnu stjórnvalda að gera grunnskóla landsins að skóla fyrir alla. Kannað var viðhorf skólastjóra nokkurra grunnskóla í Reykjavík og er könnunin lokaverkefni okkar til B.A. – prófs, á þroskaþjálfabraut við Kennaraháskóla Íslands.
    Þróun grunnskóla og sérkennsluúrræða á Íslandi eru rakin, farið er yfir starfsemi grunnskóla Reykjavíkur og Aðalnámskrá grunnskóla. Teknar eru fyrir skilgreiningar á ýmsum hugtökum, farið er í Salamanca-yfirlýsinguna og skóla fyrir alla. Einnig eru tekin fyrir lög og reglugerðir sem skólastarf á Íslandi er byggt á og er sérstaklega vitnað í 37. gr. grunnskólalaga nr. 66/1995. Framkvæmd athugunarinnar, helstu niðurstöður viðtala og samanburður ásamt ályktunum eru tekin fyrir í köflunum þar á eftir.
    Helstu niðurstöður athugunarinnar eru þær að enn sé langt í land með stefnu stjórnvalda um skóla fyrir alla. Við teljum að hennar helsta hindrun séu viðhorf fagmanna innan skólakerfisins og of lítið fjármagn. Jafnframt ályktum við út frá svörum viðmælenda okkar að þeir hafi miklar áhyggjur af félagslegri stöðu nemenda sinna.

Samþykkt: 
  • 29.8.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/690


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Heildarskjal.pdf399.04 kBOpinnHeildarskjalPDFSkoða/Opna