is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6954

Titill: 
  • Lífsleikninámsefnið Samvera : notkun og gagnsemi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Samskipti nemenda hafa áhrif á námsárangur og vellíðan í skólanum. Með það í huga er mikilsvert að finna leiðir til að vinna úr ágreiningi á jákvæðan hátt. Samverunámsefnið er ein leið að þessu markmiði og þótti rannsakanda mikilvægt að rannsaka hvaða árangur er af notkun þess. Í ritgerð þessari er því tekið fyrir lífsleikninámsefnið Samvera. Fjallað verður um hvaða kenningar liggja að baki námsefninu og hvaða markmiðum því er ætlað að ná. Gerð var eigindleg rannsókn í grunnsskóla í Reykjavík og eftirfarandi rannsóknarspurning sett fram ,,Hvaða áhrif hefur lífsleikninámsefnið Samvera haft á samskipti nemenda í Grenndarskóla að mati kennara og skólastjórnenda?“ Gögnum var safnað með níu opnum viðtölum og þátttökuathugun. Helstu niðurstöður benda til þess að lífsleikninámsefnið Samvera sé góð aðferð sem vert er að nota til að kenna nemendum að leysa ágreining á jákvæðan hátt. Aðferðin dregur ekki úr ágreiningi sem slíkum en hefur jákvæð áhrif á úrvinnslu hans.

Athugasemdir: 
  • Lífsleikni námsefni
Samþykkt: 
  • 24.11.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6954


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lokaritger%F0in m%EDn %ED upp og mennt.pdf429.22 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna