is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6962

Titill: 
  • Stoðir fyrir menntastefnu : um valdheimildir skólafólks í Reykjavík.
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar rannsóknar er að skoða mismuninn á almennum hluta Aðalnáms-krár grunnskóla og starfsáætlana Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur áranna 1999 til og með 2005. Aðalnámskrá var lesin og áhersluatriði hennar voru dregin út, og því næst voru starfsáætlanirnar lesnar. Einnig voru lög um grunnskóla nr. 66/1995 lesin og grundvöllur þeirra og aðalnámskrár sem eru ritin Nefnd um mótun menntastefnu, Enn betri skóli. Færa má rök fyrir því að það sé að nokkru grundvöll að finna fyrir skólastefnu Reykjavíkur í aðalnámskrá. Ljóst má vera, á sama tíma, að Reykja-víkurborg hefur, að vissu leyti, myndað sér skólastefnu sem gengur lengra í að ramma inn starf skóla borgarinnar en ríkið sá ástæðu til og að þetta gerðu borgaryfirvöld án stoðar laga eða reglugerða Leitt er rökum að því að hugsanlega hafi fagleg sýn einnar manneskju ráðið ferð.

Samþykkt: 
  • 25.11.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6962


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
stodir_fyrir_menntastefnu_.pdf216.31 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna