is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/698

Titill: 
  • Félags- og tómstundatilboð í grunnskólum Akureyrar : geta börn og unglingar með fatlanir nýtt sér þau?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessa verkefnis var rannsókn á því hvort 10 - 16 börn og unglingar með fatlanir gætu nýtt sér tilboð Akureyrarbæjar á félags- og tómstundastarfi innan og utan skóla. Gerð er grein fyrir lögum um réttindi barna og unglinga til félags- og tómstundastarfs og hvaða skyldur bæjarfélagið hefur samkvæmt þeim. Fjallað var um þroskaferil barna og unglinga og gildi félags- og tómstundastarfs í uppvexti þeirra.
    Rannsókn var gerð á þátttöku 10-16 ára barna og unglinga með fatlanir, í félags- og tómstundastarfi á vegum Akureyrarbæjar. Rannsóknin var bæði eigindleg og megindleg. Viðtöl voru tekin við þrjár mæður sem eiga börn í markhópnum og spurningalistar sendir til annarra þátttakenda.
    Niðurstaðan úr rannsókninni er sú að bæjarfélagið uppfyllti skyldur um aðgengi fyrir fatlaða. En aðstoð sem honum ber skylda til að veita samkvæmt lögum um jafnan rétt til þátttöku markhópsins í félags- og tómstundastarfi var ekki til staðar. Fram kom í rannsókninni að upplýsingar til notenda og foreldra þeirra voru ekki nægar um réttindi þeirra og skyldur bæjarfélagsins að framfylgja þeim.

Samþykkt: 
  • 29.8.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/698


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Greinargerð.pdf308.17 kBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna
Fylgiskjal 1.pdf76.51 kBOpinnFylgiskjal 1PDFSkoða/Opna
Fylgiskjal 2.pdf76.97 kBOpinnFylgiskjal 2PDFSkoða/Opna
Fylgiskjal 3.pdf52.79 kBOpinnFylgiskjal 3PDFSkoða/Opna