Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7027
Ritgerð þessi fjallar um ógildingarreglu 2. mgr. 95. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993, er varðar ógildingu á fjárskiptasamningum hjóna. Skoðað verður hið sértæka orðalag ákvæðisins og hvort sérstakt eðli fjárskiptasamninga í hjúskaparétti réttlæti slíka þrengingu á sönnunarmati um efni samnings og aðstæður við samningsgerð og málshöfðunarfrest.
Miðað verður við hið almennara orðalag 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga og ákvæðin tvö borin saman. Í ritgerðinni er litið til þróunar ógildingarákvæðis hjúskaparlaga, athuguð eru lögskýringargögn og dómaframkvæmd rakin í því augnamiði að leita svara við því hvort skýr vilji löggjafans sé til að viðhalda sérreglu hjúskaparlaga.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
ritgerd_final.pdf | 312.58 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |