Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7037
Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á vægi lögskýringargagna við túlkun Hæstaréttar á refsiheimildum með hliðsjón af grunnreglu um lögbundnar refsiheimildir (hér eftir nefnd grunnregla), meginreglunni um skýrleika refsiheimilda (hér eftir nefnd skýrleikaregla) og reglunni um að vafa skuli túlka sakborningi í hag (hér eftir nefnd túlkunarregla). Beiting refsiheimilda er í eðli sínu íþyngjandi fyrir sakborning. Togast því á sjónarmið um vægi lögskýringargagna og fyrrnefndar meginreglur. Refsiréttur krefst því sérstakrar varúðar við beitingu refsiheimilda með miklu vægi lögskýringargagna, en nánar verður vikið að þessu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð í lögfræði. Um vægi lögskýringargagna í dómum Hæstaréttar, togstreita við sjónarmið um fyrirsjáanleika..pdf | 429.66 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |