Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7092
Lagt var upp í könnunarleiðangur til að athuga hvaða rannsóknir og athuganir hafa verið gerðar á náttúru Vopnafjarðar, hvaða þekking er til staðar, hvar upplýsingarnar liggja, hversu aðgengilegar þær eru og hvað er mest aðkallandi að athuga frekar.
Markmiðið var að safna saman sem mestum upplýsingum um náttúru Vopnafjarðar. Það var gert með heimildaleit, samantekt og vinnslu úr gögnum úr gagnagrunnum og með því að sækja í smiðju kunnugra. Enn fremur með því að gera sjónrænar athuganir og taka myndir í Vopnafirði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Náttúrufar Vopnafjarðar - KJ.pdf | 5.31 MB | Opinn | Skoða/Opna |