Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7100
Markmiðið með þessu verkefni var að gera hönnunartillögu að lækningajurtagarði í Nesi á Seltjarnarnesi. Til að ná því markmiði var í upphafi lögð fram greinargerð með
tilvitnunum í heimildir varðandi lækningajurtagarða, tilvist þeirra, sögu og stöðu í nútímasamfélagi. Velt var upp merkingu orðsins garður, upphafi garðmenninar á Íslandi og þróun jurtagarðsins í íslensku samfélagi, með áherslu á efnisnotkun og
umgjörð. Staðhættir í Nesi voru kannaðir, starfsemin, gróðurfar, veðurfar, örnefni,sagan, fornleifar, náttúruvernd, útivist og útsýni. Við staðháttagreininguna var andi staðarins einnig dreginn fram og SWOT-greiningu beitt. Í kjölfar greinargerðar og greiningarvinnu var hönnunartillaga að lækningajurtagarði sett fram, þar sem meginmarkmiðið var að gera fræðslu um lækningajurtir og notkun þeirra á Íslandi aðgengilega.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_SigridurDuna_V2010_allt.pdf | 7.56 MB | Opinn | Skoða/Opna |