Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7107
Hugmyndin að þessu verkefni byggir á einu af framtíðarmarkmiðum Votlendisseturs Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, þ.e. að gera votlendissvæðin aðgengileg til útivistar og fræðslu og að koma þar upp aðstöðu til að taka á móti skólahópum allt árið um kring. Fyrsta skrefið í uppbyggingu setursins var umsókn um Ramsar
skilgreiningu á svæðinu. Ramsarsamningurinn er alþjóðlegur samningur um votlendisvernd. Í fyrri hlutanum er fjallað um einkenni og gildi útikennslu og um umhverfismennt. Mikilvægi þess að börn fái að læra um náttúruna og umhverfi sitt úti
við er óumdeilanlegt, bæði til að auka umhverfisvitund þeirra og auka skilning á gangi náttúrunnar. Í seinni hlutanum eru kennsluverkefni sem eru ætluð miðstigi grunnskóla og eru unnin með Aðalnámskrá grunnskóla að leiðarljósi. Með þeim fylgir
fræðsluefni fyrir kennara og nemendur ásamt kennsluleiðbeiningum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS Eliza Harpa Grytvik.pdf | 6.56 MB | Opinn | Skoða/Opna |