is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7209

Titill: 
  • Hvaða skipulag hentar þekkingarfyrirtæki eins og Mentor í örum vexti?
Námsstig: 
  • Meistara
Efnisorð: 
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð byggir á raundæmisrannsókn sem gerð var á fyrirtækjunum Mentor ehf. á Íslandi og InfoMentor P.O.D.B. í Svíþjóð. Bæði þessi fyrirtæki eru þekkingarfyrirtæki sem hafa að markmiði að auka árangur í skólastarfi. Þau vinna náið saman að því að þróa og innleiða upplýsingakerfi fyrir skóla á Íslandi, í Svíþjóð og víðar í Evrópu. Fyrirtækin hafa vaxið undanfarin tíu ár frá því að vera með fáa starfsmenn yfir í það að vera með tugi starfsmanna á launaskrá.
    Fyrirtækin eru bæði mjög sveigjanleg og fljót að aðlaga sig að breytingum í umhverfi sínu, eru lífrænar heildir. Hins vegar hefur skipulag þeirra ekki verið mótað á markvissan hátt heldur hefur það þróast eftir aðstæðum. Nú er svo komið að þörfin fyrir betra skipulag er orðin knýjandi.
    Markmið rannsóknarinnar er að svara því hvernig skipulag hefur áhrif á árangur fyrirtækja sem eru að vaxa úr frumkvöðlafyrirtækjum yfir í það að vera fullburða sjálfbærar skipulagsheildir. Lagt er upp með spurninguna: Hvaða skipulag hentar þekkingarfyrirtæki eins og Mentor sem er í örum vexti?
    Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að mismunandi skipulag hentar við mismunadi aðstæður. Skipulag sem hentar sveigjanlegum og aðlögunarhæfum skipulagsheildum, sem vilja skila auknum árangri og skilvirkni í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi, þarf að vera einfalt, með láréttu valdakerfi og flötum samskiptaleiðum.
    Hvað varðar Mentor ehf. og InfoMentor P.O.D.B. eru mestar líkur á því að flatt skipulag sem byggir á teymum starfsmanna úr ólíkum störfum skili betri árangri, meiri skilvirkni og aukinni þekkingu innan fyrirtækjanna en nú er.

  • Útdráttur er á ensku

    This master’s thesis is based on a case study research. Two companies were studied, Mentor ehf. in Iceland and InfoMentor P.O.D.B. in Sweden. Both are described as knowledge companies, aiming to support better academic results at schools. The companies work closely together at building and adapting information technology systems for schools in Iceland, Sweden and elsewhere in Europe. In the last ten years Mentor and InfoMentor P.O.D.B. have grown from having only a few employees to having a workforce of over twenty people.
    Both companies are flexible and adapt quickly to changes in their environment. They are organic organisations. However over the years their structure has not been systematically developed, but has changed in response to the environment at each time. There now is an urgent need for inproved and formal structuring.
    The purpose of the research is to answer the question how organizational structure supports success of a company that is growing from being a small entrepreneurial company to a sustainable organisation. The research question is: What kind of structure will support a rapidly growing knowledge company like Mentor?
    The result of the research is that different structures suit different situations. Flexible and easily adaptable organisations that want to be effective and efficient in inter-organisational business environment need a simple, horizontal structure.
    It is concluded that by implementing horizontal structure based on teams from different disciplines, Mentor ehf. and InfoMentor P.O.D.B., will be more effective, efficient and knowledgeable.

Samþykkt: 
  • 12.1.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7209


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MA_ritgerd_bjarni_h_asbjornsson.pdf2.57 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna