Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7219
Í þessu verkefni var sjónum beint að tengslum íþróttiðkunar unglinga með íþróttafélagi við notkun þeirra á áfengi og tóbaki. Sérstök áhersla var lögð á að skoða tengsl íþróttaiðkunar með íþróttafélagi og notkun á munntóbaki.
Stuðst var við fyrri rannsóknir sem hafa sýnt að unglingar sem iðka íþróttir með íþróttafélagi neyta síður áfengis og tóbaks en þeir sem stunda ekki íþróttir. Jafnframt gera kenningar í félagsfræði ráð fyrir því að þeir sem eru í góðum tengslum við stofnanir samfélagsins séu ólíklegri til að sýna af sér frávikshegðun.
Í ritgerðinni verður vitnað í fyrri rannsóknir og vísað í kenningar um viðfangsefnið. Til að skoða tengslin betur voru notuð gögn frá rannsóknarmiðstöðinni Rannsóknum og greiningu úr rannsókn á nemendum í 8., 9. og 10. bekk á Íslandi árið 2008.
Niðurstöðurnar sýndu að þeir unglingar sem stunda íþróttir með íþróttafélagi nota síður áfengi og reykja síður en þeir sem stunda ekki íþróttir. Aftur á móti mældist lítill munur á þeim sem stunduðu íþróttir með íþróttafélagi og þeim sem gerðu það ekki þegar notkun munn- og neftóbaks var skoðuð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Forvarnargildi íþrótta og munntóbak.pdf | 466.26 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |