is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7241

Titill: 
  • Notkun steinröra í vegræsi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í ritgerðinni er leitast við að svara þeirri spurningu hvort fýsilegt sé að auka notkun innlendra steinsteyptra röra í stað innfluttra stálröra í vegræsum á þjóðvegakerfi landsins.

    Þjóðvegakerfið er í heild um 13 þúsund kílómetrar og á því eru samanlagt um 500 kílómetrar af vegræsum. Miðað við 30 ára meðallíftíma er endurnýjunarþörfin því 15-20 kílómetrar á ári. Því má ljóst vera að um töluverða hagsmuni er að ræða.
    Í ritgerðinni er leitast við að meta hvaða verð steinröraframleiðendur þurfa að bjóða til að vera samkeppnishæfir við innflutt stálrör, út frá mismunandi forsendum. Áhrifavaldar eru til að mynda; fjármögnunarkostnaður, birgðahald, rýrnun, líftími, rennsliseiginleikar mismunandi röragerða o.fl.
    Megin niðurstöður ritgerðarinnar eru að innlend steinrör séu samkeppnishæf við innflutt stálrör þegar kemur að verði. Steinrörin standa stálrörunum umtalsvert framar hvað varðar endingu og rennsliseiginleika en flutningar eru snúnari hvað steinrörin varðar vegna þyngdar þeirra umfram sambærilegs stálrörs. Þó má leiða að því líkur að með skynsamlega útfærðum flutningum og birgðahaldi megi ná þeim árangri að hlutfall flutningskostnaðar verði ekki verulega hærra á steinrörum.

Samþykkt: 
  • 13.1.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7241


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Notkun steinröra í vegræsi - BS ritgerð - Viðskiptadeild janúar 2011 - Bergþór Ólason -2609754559 - LOKAEINTAK.pdf1.53 MBLokaðurHeildartextiPDF

Athugsemd: Óskað er eftir að ritgerðin verði læst vegna viðkvæmra viðskiptalegra upplýsinga sem fram koma í henni.