Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/724
Ofþyngd og offita einstaklinga er orðin að alþjóðlegu vandamáli og hafa ráðamenn
innan heilbrigðisgeirans verulegar áhyggjur af þróun þess. Rannsóknir hafa sýnt að
þeir einstaklingar sem eiga við ofþyngd eða offitu að stríða eru í meiri hættu fyrir
líkamlegum og andlegum fylgikvillum, svo sem áunninni sykursýki, hjarta- og
æðasjúkdómum, krabbameini, félagslegri einangrun og þunglyndi. Þeir áhrifaþættir
sem nefndir hafa verið sem orsök þessa ofþyngdarvanda eru m.a. minni hreyfing,
aukin kyrrseta og breytt mataræði. Unnið var úr gögnum úr könnun sem gerð var
meðal nemenda í 6., 8. og 10. bekk í 23 grunnskólum á Íslandi. Var hún lögð fyrir í
apríl árið 2005. Úrtakið var 1999 nemendur og svöruðu 1815. Mælitækið er
spurningarlisti sem skoðaði líðan, hreyfingu, tómstundir og mataræði nemendanna og
svöruðu þátttakendur honum sjálfir. Í þessari rannsókn voru einungis skoðuð tengsl
þyngdar við hreyfingu, sjónvarpsáhorf og líðan í skóla. Helstu niðurstöður voru þær
að of þung börn og unglingar eru að hreyfa sig minna en þeir sem eru í eðlilegri
þyngd. Kom í ljós að of þung börn og unglingar eru ekki að horfa meira á sjónvarp en
þau sem eru í eðlilegri þyngd þegar allir eru bornir saman. Hins vegar kemur fram
munur milli stúlkna þegar einungis er litið til þeirra. Einnig kom í ljós að of þungum
nemendum líður almennt verr í skólanum. Benda niðurstöður til að þyngd hefur
einhver áhrif á þá þætti sem skoðaðir voru en þó ekki að öllu leiti.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA-ritgerð - med samning.pdf | 537.82 kB | Opinn | Offita - heild | Skoða/Opna | |
Efnisyfirlit-sér.pdf | 21.6 kB | Opinn | Offita - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Heimildaskrá-sér.pdf | 29 kB | Opinn | Offita - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Útdráttur-sér.pdf | 11.31 kB | Opinn | Offita - útdráttur | Skoða/Opna |