is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7293

Titill: 
  • Námundarar Norðursins. Næringaraðlögun Íslendinga að hnattrænum breytingum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Með tímanum hefur þróun fæðuvals hjá nútímamanninum leitt til aukinnar offitu. Sú þróun hefur ólík áhrif á mismunandi hópa og það erfðaupplag sem hefur valist úr í gegnum tíðina. Í ritgerð þessari er fjallað um aðlögunarhæfni mannsins að ólíkri næringu og hvernig eiginleiki hans til námundunar (e. approximation) í fæðuvali virkar á tímum hnattrænna breytinga. Spurt er hvaða hlutverki menning Íslendinga gegnir og hefur áður gegnt, í orsakasamhengi milli neyslu tiltekinna fæðutegunda og heilsufar afleiðinga fyrir Íslendinga. Þá er möguleg tenging sjúkdóma við mataræði á Íslandi skoðuð. Að endingu koma fram vangaveltur um skynsemi, atbeini og hlutverk eftirspurnar og framboðs fæðu.
    Þetta tiltekna umfjöllunarefni er mikilvægt því að Íslendingar mælast mun hærri í offitu en nágrannaþjóðirnar á Norðurlöndum á sama tíma og neysluþróun Íslendinga á síðustu öld lýsir mikilli aukningu á kolvetnum, þá sér í lagi sykurneyslu og óhóflegrar neyslu hitaeininga fyrir lítið tilstilli næringargildis. Íslendingar, eins og aðrar þjóðir, hafa farið í gegnum ferli aðlögunar í tímans rás, tekist á við áskoranir sem breyta fæðumynstri og eru sífellt að mótast með nútímanum, til hins betra og verra.

Samþykkt: 
  • 14.1.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7293


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Námundarar Norðursins. Næringaraðlögun Íslendinga að hnattrænum breytingum. Védís H. Á..pdf729.24 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna

Athugsemd: other Höfundur gefur hvorki leyfi fyrir prentun né afritun þessarar ritgerðar