is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/729

Titill: 
  • Sá sem trúir á draug finnur draug : Svæðisútvarp Austurlands á tímum stóriðjuframkvæmda
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Síðastliðin ár hafa verið mjög viðburðarík á Austurlandi. Umfangsmiklar framkvæmdir hófust
    árið 2003 þegar ákveðið var að reisa álver í Reyðarfirði og þar með einnig að byggja
    Kárahnjúkastíflu til að sjá álverinu fyrir rafmagni. Þessar framkvæmdir hafa verið mjög
    umdeildar frá upphafi og hafa umhverfisverndarsinnar þar mótmælt hvað harðast. Á svo
    athafnasömum tímum er einnig mikið að gera hjá fjölmiðlum við að upplýsa almenning um
    allt sem fram fer í samfélaginu, ekki einungis framkvæmdirnar sem slíkar heldur alls kyns
    fylgifiska þeirra. Svæðisútvarp Austurlands er með útsendingu fjóra daga í viku í 35 mínútur í
    senn en útsendingin heyrist á bylgju Rásar 2 um allt Austurland. Stöðin hefur þrjá fréttamenn
    starfandi sem sjá um að afla frétta í Svæðisútvarpið jafnframt því að sjá um mest alla
    efnisöflun af Austurlandi fyrir Ríkisútvarpið, bæði í útvarp og sjónvarp. Þessi rannsókn tekur
    til fjögurra ára af fréttum Svæðisútvarpsins til að sjá hvort fyllsta hlutleysis sé gætt í
    fréttaflutningi af stóriðjunni. Ákveðin tímabil voru tekin fyrir á hverju ári, frá byrjun maí fram
    í enda september, alls 40 vikur í heildina.
    Stóriðjufréttir voru greindar niður í tæknilegar-, virkjana-, og umhverfisfréttir þar sem
    tæknilegar fréttir eru einungis um tæknileg atriði stóriðjuframkvæmdanna í Reyðarfirði og við
    Kárahnjúka. Tíminn sem fór í virkjana- og umhverfisfréttir reyndist vera mjög svipaður og
    ekki marktækur munur miðað við 95% öryggismörk. Það sama gilti með þær fréttir sem voru
    skilgreindar sem jákvæðar eða neikvæðar gagnvart stóriðjunni, það var ekki marktækur
    munur þar á milli.
    Svæðisútvarpið hefur fengið á sig þá gagnrýni að vera hlutdrægt, ýmist með eða á móti
    stóriðjunni. Það virðist þó vera sem fréttaflutningurinn sé í jafnvægi og að íbúar Austurlands
    fái þannig að njóta þess að hafa nærmiðil sem tekur faglega á málefnum líðandi stundar.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/729


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
frettagreiningarblad_ragga_greta.pdf12.6 kBTakmarkaðurSá sem trúir - fylgiskjöl1PDF
spurningar_vidtol_ragga_greta.pdf12.85 kBTakmarkaðurSá sem trúir - fylgiskjöl2PDF
ba_sa_sem_truir.pdf519.47 kBTakmarkaðurSá sem trúir - heildPDF
efnisyfirlit_ragga_greta.pdf28.51 kBOpinnSá sem trúir - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
heimildarskra_ragga_greta.pdf33.02 kBOpinnSá sem trúir - heimildaskráPDFSkoða/Opna
utdrattur_ragga_greta.pdf10.37 kBOpinnSá sem trúir - útdrátturPDFSkoða/Opna