Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/734
Ástæðan fyrir því að ég valdi að taka þátt í “Arctic Social Indicator (ASI)” verkefninu er einföld,
kennari minn sem er einnig stjórnandi verkefnisins bauð upp á þáttöku nemenda. Verkefni eins
og ASI er fumkvöðla starfsemi sem gæti haft mikil áhrif á líf þeirra sem búa á norður
heimskautinu.
Flestar þjóðir, samfélög og þjóðfélög nota mælitæki til að mæla hvernig samfélög þeirra
þróast frá ári til árs eða frá áratugi til áratugar. Þessi mælitæki eru mjög mikilvæg þar sem þau
lýsa fyrir okkur ástandi á fjölmörgum þáttum sem hafa áhrif á okkar daglega líf. Upplýsingar sem
stjórnmálamenn og bæjarstjórnir nota til að ákveða hvað megi betur fara, án slíkra upplýsinga
getur verið erfitt að finna hvað sé gert vel og hvað megi betur fara. Eins og er eru ekki til
mælikvarðar sem hægt er að yfirfæra á norður heimskautið, það er mælikvarðar sem geta mælt
mannlega þróun nákvæmlega. Það er því markmið ASI verkefni hópsins að búa til mælitæki sem
ríkisstjórnir geta notað til að mæla mannlega þróun í þeirra samfélögum, mælikvarða sem munu
standast tímans törn og eru nákvæmir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Arctic_Social_Indicators.pdf | 745.66 kB | Opinn | Arctic - heild | Skoða/Opna |