is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/738

Titill: 
  • Náttúran allan ársins hring : útivist og hreyfiþroski leikskólabarna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tilgangur verkefnisins er að athuga hvort marktækur munur sé á hreyfiþroska barna á leikskólum sem hafa útivist sem markvissann þátt í starfi sínu og á leikskólum sem hafa það ekki. Hreyfiþroski var kannaður á börnum fæddum 2001 sem eru því á sjötta aldursári.
    Farið er yfir helstu þætti sem hafa áhrif á hreyfifærni barns: hreyfiþroska, hreyfinám, hreyfivanda, hreyfistjórnun, þróun líkamans og fleira. Talað er um hreyfingu og leik barna á leikskólum og útivist á leikskólum. Einnig er farið yfir rannsóknaraðferð, hreyfiþroskaprófið og aðferðafræði rannsókna.
    35 börn frá tveimur leikskólum sem starfa eftir ólíkum markmiðum, tóku þátt í rannsókninni. Við notuðum MOT 4-6 hreyfiþroskapróf til að mæla hreyfiþroska barnanna.
    Við könnuðum hvort marktækur munur væri á hreyfiþroska þessara tveggja leikskóla en það reyndist ekki vera (p = 0,570).
    Við völdum þetta viðfangsefni til að kanna hvort grundvöllur væri fyrir því að gera útivist að markvissari þætti í leikskólastarfi en við teljum mikilvægt að börnin komist í snertingu við náttúruna með aukinni útivist.

Samþykkt: 
  • 31.8.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/738


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Greinargerð.pdf663.38 kBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna
Fylgiskjal 1.pdf68.58 kBOpinnFylgiskjal 1PDFSkoða/Opna
Fylgiskjal 2.pdf112.23 kBOpinnFylgiskjal 2PDFSkoða/Opna
Fylgiskjal 3.pdf32.57 kBOpinnFylgiskjal 3PDFSkoða/Opna
Hreyfiþroskapróf.pdf284.36 kBOpinnHreyfiþroskaprófPDFSkoða/Opna
Úrvinnslublöð.pdf51.79 kBOpinnÚrvinnslublöðPDFSkoða/Opna
Útdráttur.pdf37.09 kBOpinnÚtdrátturPDFSkoða/Opna
Þakkir.pdf27.61 kBOpinnÞakkirPDFSkoða/Opna