Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/740
Hversu mikil áhrif hefur regluleg hreyfing á líkamlegt ástand og andlega líðan fólks? Til að leita svara við þeim áhugaverðu spurningum ákvað ég að gera rannsókn á konunum sem ég hef haft hjá mér í líkamsræktarhóp á Laugarvatni síðan síðastliðið haust.
Segja má að rannsóknarferill minn í þessari rannsókn hafi í raun verið þríþættur:
• Mæling í upphafi líkamsræktarnámskeiðsins.
• Skipulögð þjálfun.
• Mæling í lok líkamsrætarnámskeiðsins.
Helstu rannsóknarspurningarnar mínar voru eftirfarandi:
1) Hver verður árangur þjálfunar fyrir og eftir tólf vikna líkamsræktarnámskeið?
2) Hve mikil áhrif hefur markviss þjálfun á lífsgæði?
3) Hvort meta konurnar meir líkamlegan eða andlegan ávinning líkamsræktar?
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Fræðslumappa.pdf | 362.85 kB | Opinn | Fræðslumappa | Skoða/Opna | |
Fylgiskjöl.pdf | 146.38 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
Fyrirlestur.pdf | 375.23 kB | Opinn | Fyrirlestur | Skoða/Opna | |
Greinargerð.pdf | 1.34 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |