Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7461
Markmið þessa verkefnis var að framkvæma arðsemisgreiningu á flutningi koltvísýrings (CO2) frá Sorpu á Álfsnesi til garðyrkjubænda. Smíðað var líkan sem reiknaði út arðsemismælikvarða miðað við inntaksgildi. Þeir mælikvarðar sem notast var við í þessu verkefni voru innri vextir (IRR) og núvirði greiðsluflæðis (NPV). Til að finna inntaksgildi fyrir arðsemislíkan þurfti að kanna hvernig heppilegast væri fyrir sameiginlegt rekstrarfélag Sorpu og Sölufélags garðyrkjumanna (CARB-GARB) að annast geymslu og flutning á CO2. Til að komast að niðurstöðu um arðsemi verkefnis þurfti að finna markaðsverð CO2 til að bera saman við verð frá CARB-GARB.
Miðað við 15% ávöxtunarkröfu CARB-GARB var niðurstaðan sú að mæla mætti með því að ráðast í verkefnið.
Lykilorð: Arðsemismat, garðyrkja, koltvísýringur (CO2) .
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Meistaraverkefni - Lokaútgáfa.pdf | 1.9 MB | Lokaður | Heildartexti |