is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Lagadeild > Lokaverkefni í lagadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7566

Titill: 
  • Standast þær greinar laga um ráðherraábyrgð sem fyrrverandi forsætisráðherra, Geir Hilmari Haarde, er gert að sök að hafa brotið gegn, kröfur um skýrleika refsiheimilda? : Standast aðrir þættir ákærunnar og aðdraganda hennar meginreglur refsiréttar?
  • Titill er á ensku Do those articles of the laws on Ministerial Accountability, which former Prime Minister, Geir Hilmar Haarde, has been accused of having violated, measure up to the clarity requirements of penal authority? Do other segments of the indictment and the events leading up to it, measure up to the principles of the penal code?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Undanfarin misseri hafa miklar umræður og deilur átt sér stað á Alþingi jafnt sem íslensku samfélagi, um ráðherraábyrgð og réttmæti ákæru á hendur fyrrverandi ráðherrum. Verður í
    þessari ritgerð fjallað um ákæruna á hendur fyrrverandi forsætisráðherra, Geir Hilmari Haarde og aðdraganda hennar. Megininntak ritgerðarinnar er á þær greinar sem fyrrverandi
    forsætisráðherra er gert að sök að hafa brotið gegn með tilliti til skýrleika refsiheimilda.
    Einnig er þó vikið að öðrum þáttum tengdum ákærunni, er kunna að vekja efasemdir um réttmæti hennar. Skoðuð lög um ráðherraábyrgð og lög um landsdóm, skrif íslenskra fræðimanna um skýrleika refsiheimilda og íslenskir dómar er fjalla um skýrleika refsiheimilda. Þar sem aldrei hefur reynt á íslensk lög um ráðherraábyrgð né lög um landsdóm, er horft til þess hvernig slíku er háttað í Danmörku og Noregi, ásamt því að skoðaðir eru nokkrir dómar Mannréttindadómstóls Evrópu, er víkja að skýrleika refsiheimilda.

    Niðurstöður ritgerðarinnar hníga að því að þær greinar sem fyrrverandi forsætisráðherra er gefið að sök að hafa brotið gegn, standist kröfur sem gerðar eru til skýrleika refsiheimilda. Þá standist skipan dómara í landsdómi 1. mgr. 70. gr. stjskr. Kosning Alþingis um að ákæra einungis fyrrverandi forsætisráðherra, hafi óneitanlega pólitískan blæ yfir sér og spurning hvort það brjóti gegn jafnræðisreglu 65. gr. stjskr. Með Hrd. 491/2007 er þó ljóst að þó sumir ráðherrar hafi komist upp með lögbrot muni það ekki leiða til sýknu fyrrverandi
    forsætisráðherra. Mesti vafinn leikur á hvort 22. gr. ldl., er kveður á um að rannsókn ákveðinna atriða geti farið fram fyrir héraðsdómi, uppfylli 145. gr. sml. um að rannsókn sé að
    fullu lokið áður en ákvörðun er tekinn um ákæru og 111. gr. sml. um milliliðalausa sönnunarfærslu. Við mat á því munu dómstólar væntanlega líta til sérstöðu ráðherraábyrgðar.

Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð
Samþykkt: 
  • 16.2.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7566


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sýnilegt.pdf293.11 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna
Ekki Sýnilegt.pdf488.1 kBLokaðurMeginmálPDF