Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7572
Í þessu lokaverkefni til BS gráðu í viðskiptalögfræði er ætlunin að kanna hvað þagnarskylda er, hver er tilgangur þagnarskyldu, hver gildandi réttur er varðandi þagnarskylduna, og kanna hvort um sé að ræða takmarkanir á henni eða frávik? Í framhaldi af því er vert að skoða siðareglur og lagareglur og skilja þann mun sem þar er á, en einnig verður til skoðunar hvar þessar reglur fara inn á svið hvors annars.
Margar stéttir í þjóðfélaginu vinna undir ákvæðum þagnarskyldu. Í þessu verkefni skoða ég aðallega þau þagnarskylduákvæði sem prestar, lögmenn og læknar vinna undir.
Í 71. gr. stjórnarskrárinnar er kveðið á um friðhelgi einkalífs okkar manna, ekki má skerða á neinn hátt þessa friðhelgi og þessi grein er undirstaða þagnarskyldunnar sem þegnar landsins
eiga rétt á.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_ritgerd_Karitas_thrainsdottir_thagnarskylda.pdf | 423.38 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |